© Aðsend mynd (AÐSEND)

Ásta Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri skattsviðs endurskoðunarskrifstofu Ernst & Young.  (EY á Íslandi).

Fram kemur í tilkynningu frá Ernst & Young að Ásta starfaði áður sem lögfræðingur hjá PwC frá árinu 2005 þangað til hún hóf störf hjá EY. Hún hefur jafnframt unnið hjá Ríkisskattstjóra og hjá yfirskattanefnd.

Ásta lauk lögfræðiprófi frá H.Í. 1996 og fékk málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2000.