Ásthildur Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framleiðslustjóra hjá Silent. Ásthildur mun koma til með að sjá um samskipti við starfsmenn framleiðsludeildar og verkefnastjóra ásamt skipulagi á verkefnum fyrirtækisins auk þess að koma að mótun starfseminnar til framtíðar.

Ásthildur kemur til starfa frá Viðskiptaráði Íslands þar sem hún hefur haft umsjón með samskipta- og útgáfumálum ráðsins síðastliðin fjögur ár.

Landsliðsmaður í blaki

Hún starfaði áður á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins þar sem hún vann m.a. með samningahópi um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Ásthildur er stjórnmálafræðingur að mennt, nam nýsköpunar- og frumkvöðlafræði á meistarastigi við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) og stundar nú MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Til gamans má geta að Ásthildur er leikmaður með kvennalandsliði Íslands í blaki að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Silent.

Silent er 8 ára gamallt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð kynningarmyndbanda, auglýsinga með áherslu á samfélagsmiðla. Hjá Silent starfa 12 manns í föstu stöðugildi ásamt fjölda verktaka.

„Silent er spennandi fyrirtæki sem er búið að byggja upp góðan hóp viðskiptavina í gegnum tíðina og er þekkt fyrir hraða og áreiðanlega þjónustu,“ er haft eftir Ásthildi í tilkynningunni.

„Mitt hlutverk verður að að samþætta ólíka þætti framleiðslunnar og ná fram aukinni skilvirkni og viðhalda þannig sérstöðu fyrirtækisins. Ég er full tilhlökkunar að takast á við áskoranir og koma inn í sterkt teymi sem starfar hjá fyrirtækinu."