Atlantsolia hefur birt ársreikning ársins 2013. Þar kemur fram að félagið hagnaðist um rúmar 402 milljónir króna á árinu. Er það töluverður viðsnúningur í rekstri félagsins, þar sem það tapaði rúmum 32 milljónum króna árið 2012.

Eignir félagsins námu rúmum 1,8 milljörðum króna í árslok 2013. Skuldir voru rúmur 1,1 milljarður króna, og nam eigið fé félagsins því um 704 milljónum króna í árslok.

Stjórn fyrirtækisins hefur lagt til að 155 milljónir króna verði greiddar í arð til eigenda félagsins á árinu 2014.