Í dag, 2. febrúar, voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2016 kynntar og er þetta átjánda árið sem ánægja íslenskra
fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í ár eru niðurstöður birtar fyrir 19 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöðurnar á 200 til 1.178 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. „Líkt og undanfarin þrjú ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina,“ segir í tilkynningunni.

Atlantsolía fékk 74,4 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 72,1 stig, Orka náttúrunnar fékk 65,5 stig og Íslandsbanki fékk 65,2 stig. „Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög og smásöluverslanir. Þá var ekki marktækur munur á Atlantsolíu sem var með hæstu einkunnina á heildina litið og Nova sem var með næst hæstu einkunnina,“ segir að lokum.