Viðskiptahugmyndin Atmonia sigraði Gulleggið 2017, frumkvöðlakeppni Icelandic Startups. Jón Atli Benediktsson afhenti verðlaunagripinn Gulleggið við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gær, laugardaginn 28. október að því er segir í fréttatilkynningu.

1. sæti - Sigurvegararnir hlutu að launum 1.000.000 kr. frá Landsbankanum og aðgang í verkefnið Aðallínu frá Íslandsstofu.

Atmonia þróar byltingarkennt ferli til umhverfisvænnar áburðarframleiðslu á smáskala. Ferlið mun nýta vatn og rafmagn til framleiðslu á áburði á vökvaformi sem hentar til dreifingar með úðakerfi. Þau gera bændum kleift að framleiða sinn eigin köfnunarefnisáburð og minnka kolefnisspor sitt í leiðinni.

2. sæti - þeir sem voru næstir hlutu að launum 500.000 kr. frá Landsbankanum og 10 klst. einkaleyfaráðgjöf frá Marel.

Í öðru sæti var Genki Instruments en fyrsta vara þeirra, Wave, er hringur sem gerir tónlistarfólki kleift að hafa áhrif á tónlistarsköpun og flutning í rauntíma með hreyfingum handarinnar. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt og leyfir þannig tónlistarfólki að stjórna hljóði, effektum eða senda skipanir á náttúrulegan og einfaldan hátt.

Með hugbúnaði sem fylgir Wave getur tónlistarfólk sérsniðið hringinn að sínum þörfum með því að para saman hreyfingar og þær breytingar sem þær hafa á tónlistina. Wave fær tölvur og tækni til að skilja litbrigði mannlegrar tjáningar og leyfir tónlistarfólki að tjá sig á náttúrulegan hátt.

3. sæti - veitti að launum 300.000 kr. frá Landsbankanum og 10 klst. lögfræðiráðgjöf frá ADVEL Lögmönnum.

Í þriðja sæti var Taktikal en fyrirtækið er að þróa hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum og í kjölfarið heimila ýmsar sjálfvirkar þjónustur er krefjast viðskiptasambands. Hugbúnaðurinn virkar í öllum snjalltækjum og byggir á sjálfvirkri ferlavél.

Lausnin gerir mögulegt að bjóða einstaklingum og lögaðilum í viðskiptasamband - sjálfvirkt og pappírslaust á örfáum mínútum. Þannig geta fyrirtæki sem taka upp lausnina hagrætt í rekstri, minnkað brottfall viðskiptavina og boðið nýjum viðskiptavinum góða upplifun með því að „klára málið“ sjálfir í símanum.

Aukaverðlaun

KPMG veitti 20 klst. í ráðgjöf til Munndropans, en það er munnstykki sem kemur í veg fyrir að fólk gnísti tönnum. Nova stóð jafnframt fyrir vali fólksins sem er opin netkosning, en þá viðurkenningu hlaut fyrirtækið Ylhýra, en það er hugbúnaður sem kennir íslensku á samtalsformi.

Þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin á þessu ári og bárust alls yfir 200 hugmyndir auk þess sem 25 einstaklingar skráðu sig án hugmyndar. Sífellt fleiri hafa tekið þátt í Gullegginu með þeim hætti og fengið tækifæri til að taka þátt í verkefnum annarra. Þátttökuhlutfall kvenna var um 40% í heildina sem er hærra en víða annars staðar í sprotaumhverfinu.

Undanfarna tvo mánuði hafa þátttakendur sótt námskeið og fengið þjálfun í mótun viðskiptahugmynda og uppbyggingu fyrirtækja og leiðsögn við undirbúning fjárfestakynninga. Keppninni lauk í dag með kynningu stigahæstu teymanna tíu fyrir dómnefnd.

Eftirfarandi eru þau 10 fyrirtæki sem kepptu til úrslita:

  • Atmonia: Byltingarkennt ferli til umhverfisvænnar áburðarframleiðslu á smáskala.
  • Freebee: Hugbúnaður sem veitir neytendum aðgang að ókeypis vöru og þjónustu og fyrirtækjum aðgang að rýnihópum.
  • Genki Instruments: Wave, fyrsta vara fyrirtækisins, er hringur hannaður fyrir tónlistarfólk. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt og þannig getur tónlistarfólk stjórnað hljóði og sett af stað skipanir í rauntíma með einföldum hætti.
  • Reykjavík Roller Coaster: Upplifun í sýndarverkuleika þar sem notandinn þeytist um í rússíbanahermi í gegnum undur íslenskrar náttúru.
  • Spontant: Hugbúnaður sem hjálpar hvatvísum ferðamönnum að finna ævintýri og afþreyingu á síðustu stundu og ferðaþjónustufyrirtækjum að hámarka nýtingu.
  • Munndropinn: Dropalaga munnstykki sem þrýstir tungunni niður og kemur þar með í veg fyrir að hægt sé að gnísta tönnum.
  • Myrkur: Framleiðsla á leikjaseríu sem notar allra nýjustu tækni til að lágmarka kostnað og auka gæði.
  • Taktikal: Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum og í kjölfarið heimila ýmsar sjálfvirkar þjónustur er krefjast viðskiptasambands.
  • Tasty Rook: Stafrænir samkvæmisleikir fyrir snjallsíma sem notendur spila augliti til auglitis með fjölskyldu og vinum hvar og hvenær sem er. Fyrirtækið hefur þegar gefið út leikinn Triple Agent.
  • Ylhýra: Hugbúnaður sem kennir íslensku á samtalsformi.

Um Gulleggið

Gulleggið er haldið á vegum Icelandic Startups í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst og Listaháskóla Íslands með stuðningi lykilaðila í íslensku atvinnulífi. Í vor fagnaði Gulleggið tíu ára afmæli en um 2.400 hugmyndir hafa borist í keppnina frá upphafi. Af þeim 100 fyrirtækjum sem hafa hafnað í topp 10 sætunum er tæplega helmingur enn starfandi.

Keppnin er haldin að fyrirmynd MIT háskóla í Bandaríkjunum og Venture Cup í Danmörku. Meginmarkið Gulleggsins er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja.