Þann 24. október 1990 tókust Eyjamenn á við lið Stjörnunnar og fór svo að ÍBV tapaði með eins marks mun, 24-25. Í umfjöllun DV á sínum tíma sagði að mikið hefði gengið á síðustu mínútur leiksins, enda hefðu „afspyrnulélegir dómarar“ algerlega misst tökin á leiknum. Á myndinni, sem birtist í DV, sést Elliði berjast um knöttinn við Hálfdán Þórðarson.