Atorka hefur eignast um 20% hlut í Shanghai Century Acquistion Corp (SHA) sem er skráð á AMEX markaðnum í New York. Heildarverð kaupanna er um tveir milljarðar króna og hafa kaupin átt sér stað á undanförnum vikum, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Atorka fjármagnar kaupin með handbæru fé. SHA er félag sem er stofnað sérstaklega í þeim tilgangi að sameinast öðru félagi (e. Special Purpose Acquistion Corporation, SPAC) og hefur það samið um kaup á kínverska lyfjafyrirtækinu Sichuan Kelun Pharmceutical (Kelun) með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda í Kína og er það ferli í hefðbundnum farvegi. Kelun er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og dreifingu á vökva í æð (IV solutions) í Kína.

Fyrirtækið rekur 13 verksmiðjur í Kína, starfrækir þar 53 söluskrifstofur og er með með um 6.800 starfsmenn. Kelun framleiðir um 90 tegundir af vökvum og er heildarframleiðslugeta félagsins um 1.4 milljarðar skammta á ári. Félagið er einnig í framleiðslu á stungulyfjum og lausasölulyfjum (OTC). Fyrirséður er mikill vöxtur í heilbrigðisgeiranum í Kína á næstu árum og er Kelun með sterka stöðu til að taka þátt í þeim vexti. Atorka hefur einnig á undanförnum mánuðum keypt kauprétti í félaginu (e. warrants) sem eru nýtanlegir þegar kaupin á Kelun eru gengin í gegn.