Áætlað er að 202.600 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í september 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 80,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.500 starfandi og 3.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,6% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,5%.

Samanburður mælinga fyrir september 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 9.100 manns og jókst hlutfall þess af mannfjölda um 1,2 prósentustig. Sömu sögu má segja um fjölda starfandi. Þar fjölgaði um 11.800 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda hækkaði um 2,4 prósentustig. Atvinnulausir í september 2018 mældust 2.800 færri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 5.900 eða 3,0% af vinnuaflinu. Alls voru 48.100 utan vinnumarkaðar í september 2018 sem er fækkun um 1.600 frá því í september 2017 þegar þeir voru 49.700.

Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi 1,7%

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 204.900 í september 2018. Atvinnuþáttaka var því 81,6% í september, sem er nánast sama hlutfall og var í ágúst. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í september var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 3.600 eða 1,7%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í september 2018 var 80,2%, sem er 0,7 prósentustigum hærra en það var í ágúst.