Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands mældist atvinnuleysi í mars 1,7%. Í mánuðinum voru að jafnaði 202.800 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði sem jafngildir 84,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.300 starfandi og 3.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7%.

Ef borið er saman mælingar fyrir mars 2016 og 2017 sést að atvinnuþátttaka jókst um 3,1 prósentustig milli ára. Fjöldi starfandi jókst um 15.500 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda um 4,7 stig. Atvinnulausum fækkaði um 3.800 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 2,1 stig.

Einnig kemur fram í frétt Hagstofu Íslands að atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands síðan í nóvember 2007 þegar atvinnuleysi mældist 1,3%.