Hagstofa Íslands greinir frá því að atvinnuleysi hafi verið 3,8% í ágúst eða um 7.500 manns. Þar af eru 2800 karlar og 4.700 konur. Þetta er lækkun um 0,9% frá sama mánuði í fyrra en þá var atvinnuleysi 4,7%.

Einnig er greint frá því að atvinnuþátttaka var um 1,3% hærri í ágúst 2015 en hún var í sama mánuði fyrir árið 2014. Hlutfall starfandi af mannfjölda í ágúst 2015 er 84,3%.