Í dag er gengið til kosninga í tveimur Evrópuríkjum. Í Austurríki eru forsetakosningar endurteknar eftir að hæstiréttur landsins ógilti niðurstöður kosninganna í maí vegna brots á kosningalögum. Á Ítalíu fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur forsætisráðherrans, Matteo Renzi, að breytingum á stjórnarskrá landsins.

Tveir frambjóðendur etja kappi í forsetakosningunum í Austurríki, þeir Norbert Hofer, frambjóðandi Frelsisflokksins, og Alexander Van der Bellen, frambjóðandi Græningja. Frelsisflokkurinn ( Freiheitliche Partei Österreichs ) er þjóðernissinnaður hægriflokkur og Græningjar ( Die Grünen ) eru vinstriflokkur. Skoðanakannanir hafa sýnt að mjótt er á munum milli þeirra, en verði Hofer kosinn verður hann fyrsti þjóðarleiðtogi Evrópu frá síðari heimsstyrjöld sem er þjóðernissinni af ysta hægri væng stjórnmálanna.

Á Ítalíu er kosið um tillögur Renzis um róttækar breytingar á stærð og valdsviði öldungadeildar ítalska þingsins. Renzi leggur til að öldungadeildarþingmönnum verði fækkað úr 315 í 100 og öldungadeildin svipt valdi til að leggja fram og samþykkja vantrauststillögur á ríkisstjórn landsins. Einnig er lagt til að ekki verði kosið til öldungadeildar í almennum kosningum, heldur muni hún samanstanda af 21 borgarstjóra, 74 héraðs- og sveitarstjórnum og fimm fulltrúum skipaðir af forsetanum.

Renzi hefur lofað að segja af sér ef tillögurnar verða fellar og þá gæti tekið við stjórnarkreppa. Talsverður órói hefur ríkt á evrópskum fjármálamörkuðum undanfarið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, enda er talið líklegt að tilraunir til að bjarga veikburða bönkum á Ítalíu frá því í sumar (t.d. Monte dei Paschi) fari út um þúfur ef Renzi tapar. Bankar í Suður-Evrópu standa mjög veikum fótum um þessar mundir og fall kerfislega mikilvægra banka á borð við Monte dei Paschi gæti hrundið af stað nýrri bankakrísu á evrusvæðinu.

Evrópusambandssinnar óttast sigur Hofer og að tillögur Renzi verði felldar, þar sem Hofer hefur lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild og Ítalía gæti farið sömu leið og Bretar gerðu í sumar. Ennfremur er óttast að sigur Hofer gæti hrundið af stað bylgju af sigrum þjóðernissinnaðra flokka í komandi kosningum annarra Evrópulanda, svo sem í Frakklandi, Þýskalandi og Hollandi.