Niðurstöður vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar fyrir nóvember sýna áfram að stöðugleiki ríkir á íslenskum vinnumarkaði. Töluverðar sveiflur eru eftir mánuðum og árstíðum eins og eðlilegt er, en sé litið á 12 mánaða meðaltöl má sjá að sumar stærðir breytast ekki mikið. Það á t.d. við um atvinnuþátttöku, vinnutíma og atvinnuleysi. Greint er frá þessu í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Sé litið á 12 mánaða hlaupandi meðaltal atvinnuleysis er ekki miklar breytingar að sjá. Allt frá því vorið 2017 hefur atvinnuleysi verið nokkuð stöðugt. Töluverðar árstíðar- og mánaðarsveiflur eru í tölum Hagstofunnar, en meðalatvinnuleysi í september, október og nóvember 2018 var 2,4% í ár samanborið við 2,7% 2017. Skráð atvinnuleysi hefur hins vegar aukist nokkuð að undanförnu og var 2,5% í nóvember nú miðað við 2,2% í nóvember 2017.

Hópuppsögnum fækkaði lítillega

Á árinu 2018 fékk Vinnumálastofnun 15 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem um 860 manns var sagt upp störfum. Uppsagnir í flutningum voru um 45% þessara uppsagna, um 31% voru í iðnaðarframleiðslu og um 17% í fiskvinnslu. Um 51% þessara hópuppsagna voru á höfuðborgarsvæðinu og um 34% á Suðurnesjum. Til samanburðar komu tilkynningar um 17 hópuppsagnir á árinu 2017 sem náðu til um 630 starfsmanna.

Sjá fram á fækkun um 1.400 störf

Nýleg könnun Gallup fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins sýnir að sá skortur á starfsfólki sem við höfum búið við á síðustu misserum fer minnkandi og er nú svipaður og var á árinu 2014. Um 15% stjórnenda telja að fyrirtækin búi við starfsmannaskort en samsvarandi tala var 30% í ársgamalli könnun. Minna er um skort á starfsfólki í útflutningsfyrirtækjum og ferðaþjónustu en öðrum greinum. Út frá könnuninni áætla Samtök atvinnulífsins að störfum hjá þeim sem vilja draga saman fækki um 2.000. Að sama skapi gæti störfum hjá fyrirtækjum sem vilja bæta við fjölgað um 600. Niðurstaðan gæti því orðið fækkun um u.þ.b. 1.400 störf.

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar var ekki um miklar breytingar að ræða frá því í október. Áætlað var að 204.700 manns á aldrinum 16–74 ára hafi verið á vinnumarkaði í nóvember 2018, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.800 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var því 78,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Starfandi fólk var um 4.500 fleira nú í nóvember en í sama mánuði í fyrra.

Sé litið á 12 mánaða meðaltal hefur atvinnuþátttaka verið mjög stöðug að undanförnu. Hún jókst stöðugt frá upphafi ársins 2015 fram til vorsins 2017. Frá maí 2017 fram til maí 2018 dró úr atvinnuþátttöku um 1,8 prósentustig, en atvinnuþátttaka hefur verið nær óbreytt frá því í maí á síðasta ári. Á þennan mælikvarða er atvinnuþátttaka nú svipuð og var í upphafi ársins 2015.

Heildarfjöldi vinnustunda jókst

Vinnutími var lengri í nóvember en á sama tíma 2017, 38,3 stundir á móti 37,9 stundum. Sé miðað við 12 mánaða meðaltal var vinnutíminn í nóvember sá sami og var í sama mánuði 2017 og hefur hann verið mjög stöðugur á þann mælikvarða allt þetta ár.

Sé litið á vinnuaflsnotkun eða heildarfjölda vinnustunda má sjá að starfandi fólki fjölgaði um 2,3% milli ára og vinnutími jókst um 1,1%. Heildarfjöldi vinnustunda jókst því um 3,4% og hefur verið stöðug aukning á þann mælikvarða frá því í júní.

Fregnir og umræða um vinnumarkaðinn hafa því verið með neikvæðara móti að undanförnu og verður því athyglisvert að fylgjast með tölum næstu mánaða um þróun og stöðu á vinnumarkaði. Spurningin er hvort fréttir og væntingar muni endurspeglast í tölum næstu mánaða.