Heildarvelta á fasteignamarkaði nam 10.329 milljónum króna frá 18. september til 24. september. Meðaltalsvelta síðustu 12 vikna er 9.107 milljónir króna. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 264 , en þar af voru 208 samningar um eignir í fjölbýli, 41 samningar um sérbýli og 15 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Meðalupphæð á hvern samning var 39,1 milljón króna.