Félag í eigu bandarískra fjárfestingasjóða í stýringu hjá The Baupost Group L.L.C. og bræðranna Ágústs Guðmundssonar, forstjóra Bakkavarar Group, og Lýðs Guðmundssonar, stjórnarformanns Bakkavarar Group hafa keypt 46% hlut í breska félaginu Bakkavor Group Ltd. Samkvæmt tilkynningu um viðskiptin áttu bræðurnir fyrir um 38% í Bakkavor Group.

Seljandinn er BG12 slhf. en stærstu eigendur þessu eru Arion banki, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi - lífeyrissjóður ásamt fleiri lífeyrissjóðum og fagfjárfestum. Söluverð hluta BG12 eru rúm 147 milljón pund, eða 27,3 milljarðar. Miðað við það er heildarverðmæti hlutafjár Bakkavarar Group um 320 milljónir punda, eða um 59,5 milljarðar.

Sameinaði lífeyrissjóðurinn og dótturfélag Klakka selja jafnframt sinn 5% hlut í Bakkavor Group og kaupendur skuldbinda sig til að leggja fram kauptilboð í alla aðra útistandandi hluti í félaginu, rétt um 11%, á sömu kjörum.

Salan kemur í kjölfar söluferlis Bakkavor Group Ltd. sem var í umsjón breska bankans Barclays.