Baldvin Þór Svavarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður nýs teymis sem sérhæfir sig í lausnum á sviði rafrænnar stjórnsýslu hjá Advania.

Verkefnin fela í sér að einfalda verkferla í opinberri stjórnsýslu með rafrænum lausnum, þar á meðal með rafrænu undirskriftalausninni Signet. Hún gegnir veigamiklu hlutverki í starfrænni umbreytingu fyrirtækja og stofnanna.

Baldvin Þór er með BS gráðu í tölvunarfræði og hefur starfað hjá Advania og forverum fyrirtækisins í 16 ár, þar á meðal sem deildarstjóri í samþættingu síðastliðin 10 ár.