Samkvæmt Credit Suisse Group Global Wealth Report, er hægt að flokka um 140.900 einstaklinga sem ultra-high net worth. Um er að ræða einstaklinga sem eiga yfir 50 milljónir dala.

Flestir þessara einstaklinga búa í Bandaríkjunum, eða um 52% þeirra. Kína kemur aftur á móti á eftir Bandaríkjunum en þar búa um 10.000 auðkýfingar sem eru metnir á meira en 50 milljónir dala.

Bretland er í þriðja sæti, Þýskaland í fjórða og Sviss í því fimmta.