Ekki urðu miklar breytingar á gengi Bandaríkjadals og japanska jensins og evrunnar á mörkuðum Asíu í nótt.
Kemur þetta í kjölfar ræðu Lael Brainard sem situr í stjórn bandaríska seðlabankans, þar sem hún talaði fyrir varkárni í hækkun stýrivaxta.
Hún hefur löngum verið varkár gagnvart hækkunum, en í ræðum annarra stjórnarmanna eins og Daniel Tarullo og Eric Rosengren kom fram meiri vilji til hækkunar.
Væntingar voru um að ef afstaða Brainard væri í átt til hækkunar þá væri líklegt að seðlabankinn myndin hækka stýrivexti fyrr heldur en seinna.
Helstu vísitölur í Asíu og nágrennis þróuðust svona á mörkuðum næturinnar:
- Nikkei vísitalan í Japan hækkaði um 0,34%
- Kospi vísitalan í Suður Kóreu hækkaði um 0,40%
- Taiwan Weighted vísitalan lækkaði um 0,07%
- Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 0,32%
- Dow Jones Shanghæ vísitalan í Kína hækkaði um 0,04%
- FTSE China A50 vísitalan lækkaði um 0,26%
- IDX Composite vísitalan í Indónesíu lækkaði um 1,26%
- S&P/ASX vísitalan í Ástralíu lækkaði um 0,23%
- Dow Jones New Zealand vísitalan lækkaði um 0,54%