Samherji hefur birt yfirlýsingu á vef sínum þar sem starfsmönnum fyrirtækisins er þakkað fyrir stuðning í gegnum árin, en eins og Viðskiptablaðið greindi frá í gær þá staðfesti Hæstiréttur Íslands dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella niður 15 milljón króna stjórnvaldsekt Samherja sem Seðlabanki Íslands lagði á félagið vegna meintra brota á gjaldeyrislögum.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, krafði fyrr á þessu ári Má Guðmundsson seðlabankastjóra um afsökunarbeiðni vegna málsins.

Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér að neðan:

Með dómi Hæstaréttar Íslands í dag lauk máli Seðlabanka Íslands á hendur Samherja. Með þessum dómi lýkur endanlega tæplega sjö ára aðför Seðlabankans á hendur Samherja. Öllum fullyrðingum og ásökunum Seðlabankans á hendur Samherja og starfsfólki okkar hefur verið hnekkt og bankinn beðið afhroð.

Okkur er efst í huga þakklæti til ykkar kæru starfsmenn.  Þið sem hafið staðið þétt við bakið á okkur í gegn um árin. Það er þungbært að sitja undir ásökunum jafn valdamikillar stofnunar og Seðlabanka  Íslands.  Með slíkum þunga getur verið auðvelt að brjóta niður samstöðu fólks. Takk kæru starfsmenn fyrir stuðninginn og alla vinnuna sem þið hafið lagt á ykkur. Við viljum líka þakka fyrir að þið misstuð aldrei trúna á okkur og að við höfum lagt okkur fram um að vinna störf okkar í samræmi við lög og reglur. Við unnum ásamt ykkur heiðarlega og samviskusamlega að rekstri okkar fyrirtækis á tímum sem eiga sér ekki hliðstæðu á Íslandi.   Samstaða ykkar hjálpar okkur að halda áfram þegar að okkur er sótt.

Takk fyrir.

Þorsteinn Már og Kristján.