Félag atvinnurekenda og samstarfsfélag þess, Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), fagna því að Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra um að afnema bann við lyfjaauglýsingum í sjónvarpi, en þetta kemur fram í tilkynningu sem félögin hafa sent frá sér.

Málið var afgreitt á Alþingi fyrr í dag. Félögin hafa undanfarin ár bent á að bann við auglýsingum á lausasölulyfjum í sjónvarpi feli ekki eingöngu í sér takmörkun á viðskiptafrelsi, heldur sé það einnig brot á tjáningarfrelsi og rétti neytenda til upplýsinga. Þá standist bannið ekki skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, en Evrópudómstóllinn hafi dæmt á þann veg í sambærilegu máli.

„Við fögnum því að íslenska heilbrigðisráðherra hafi ásamt Alþingi bundið enda á brot á Evrópureglum með þessum lögum,“ segir Valgeir Magnússon, formaður SÍA. „Bannið við lyfjaauglýsingum í sjónvarpi hefur alla tíð verið mjög sérkennilegt. Það eru engin sjáanleg rök fyrir því að taka einn miðil út úr og banna auglýsingar sem eru leyfðar í öllum öðrum miðlum.“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir mikilvægt að frumvarpið hafi verið samþykkt. Áður hefur komið fram tillaga á Alþingi um að afnema bannið og ekki náð fram að ganga. Þetta er mikilvægt skef til sanngirni í lagaumhverfni lyfjafyrirtækja og auglýsingastofa.