Margir af stærstu bönkum Bretlands og Bandaríkjanna hafa bannað viðskiptavinum sínum að nota kreditkort til að kaupa Bitcoin og aðrar rafmyntir. Óttast þeir að myntirnar gætu hrunið snögglega í verði og sem myndi gæti gert korthöfum erfitt fyrir að greiða bönkunum kreditkortareikninginn.

Lloyds á Bretlandi, Citigroup og JP Morgan Chase í Bandaríkjunum hafa allir bannað viðskiptavinum sínum að nota kreditkort við kaup á rafmyntum.

Notkun kreditkorta við kaup á rafmyntum hefur aukist hratt. Mastercard greindi frá því að kaup á rafmyntum hafi aukið veltu fyrirtækisins á erlendri grundu um 1% í síðasta ársfjórðungi.

Verð á einni Bitcoin mynt fór hæst í 19.000 Bandaríkjadali um miðjan desember en hefur síðan þá hríðfallið í verði. Rafmyntinni lækkaði í 7.700 Bandaríkjadali nú í morgun að því er Reuters greinir frá.