Fyrir skömmu færði Eiríkur Ellertsson á Örfirisey RE Hafrannsóknastofnun afar fáséðan og sérkennilegan fisk. Þessi fiskur heitir batti ( Dibranchus atlanticus ) og veiddist í botnvörpu 6. maí s.l. á 695 m dýpi við Reykjaneshrygg (62°33'N, 25°12'V). Fiskurinn var 15,5 cm langur.

Þessi tegund hefur einungis einu sinni áður veiðst við Ísland, svo vitað sé. Sá fiskur veiddist í júní 2007 í botnvörpu á 550-700 m dýpi í Skaftárdjúpi (63°09’N, 17°40´V) og var 17 cm langur. Frá þessu var fyrst sagt á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar .