Flugfélag íslands hefur nú beint flug á milli Keflavíkur og Akureyrar allan ársins hring í febrúar 2017 í tengslum við millilandaflug í Keflavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugfélagi Íslands. Flogið verður allan ársins hring milli Keflavíkur og Akureyrar, en auk þess hagræðis sem þetta hefur í för með sér fyrir íbúa á Norðurlandi sem vilja nýta sér millilandaflug, er gert ráð fyrir að þetta verði til þess að fjölga enn frekar ferðamönnum á landsbyggðinni.

Þar kemur einnig fram að flogið verði sex sinnum í viku milli Akureyrar og Keflavíkur yfir vetrartímann og þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann.

Haft er eftir Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, að þetta auðveldi ferðamönnum að ferðast áfram innanlands. Einnig hafði hvatning Norðlendinga sitt að segja þar sem að þessi tilhögun myndi stytta ferðatíma þeirra allverulega þegar þeir fara í utanlandsferðir.

„Hin mikla fjölgun ferðamanna til Íslands hefur aukið álagið á vinsælum ferðamannastöðum á suðvesturhorni landsins. Að fullnýta tækifærin á landsbyggðinni er eitt af höfuðverkefnunum sem íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir. Þessi nýja flugáætlun á heilsársgrunni mun styðja verulega við þá áskorun. Markmiðið er að þetta  flug tengi við sem flest millilandaflug til og frá Keflavík,“ er haft eftir Árna í tilkynningunni.