Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir nýja skýrslu Félags atvinnurekenda um eftirlitsgjöld hins opinbera vera gaglega.

„..þetta er ekki eins og stundum er, einhver einhliða áróður,“ sagði Benedikt um skýrsluna á fundi FA .

„Hér er mjög málefnalega tekið á þessu málefni og beinlínis sagt hvað sé skynsamlegt að gera. Ég mun sannarlega taka það til mín inni í ráðuneytinu og reyna að beita mér fyrir því að menn vinni með þeim hætti sem þarna er sagt.“

Geta rukkað eins oft og vilja

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um þá er skýrslan gagnrýnin á ógagnsæi gjalda sem eftirlitsaðilar leggja á atvinnulífið.

Má sem dæmi nefna að hver heimsókn eins eftirlitsaðila til Banana ehf. kostaði fyrirtækið 1,2 milljónir króna, og getur aðilinn komið eins oft og hann vill, en fyrirtækið vann nýlega mál á hendur ríkinu vegna ofgreiddra eftirlitsgjalda.

Aðhald þarf með eftirlitinu

Benedikt sagði að almennt væri stefnan hjá ríkinu í dag að hverfa frá því að marka tekjustofna til sérstakra verkefna, og væri frekari endurskoðun á því fram undan, þótt ekki myndi hún endilega ná til allra þeirra eftirlitsgjalda sem væru til umræðu.

„Það þarf líka að vera einhver sem sýnir eftirlitinu aðhald,“ sagði Benedikt sem sagði það best gert með því að reglur væru gegnsæjar og opinberar.

„Þeir sem eru undir eftirliti eru náttúrulegustu aðilarnir til þess, en þeir þora ekki alltaf að segja sitt álit því að þeir óttast að það komi niður á þeim.“

Gagnstætt öllum prinsippum að birta ekki gjaldskrá

Í skýrslunni kemur fram að Matís, sem er opinbert hlutafélag sem annast eftirlitsverkefni og rannsóknir birti ekki gjaldskrá sína opinberlega og neiti að afhenda hana.

„Ég verð nú að segja að ég er gáttaður á að opinberir aðilar skuli ekki vilja birta gjaldskrár, ekki einu sinni þegar eftir þeim er leitað,“ sagði Benedikt

„Ég verð að segja að mér finnst það með fádæmum og ég mun svo sannarlega beita mér í því. Það er ekki bara gagnstætt góðri stjórnsýslu, það er gagnstætt öllum mínum prinsippum ef einhver sem er að vinna fyrir okkur öll – og eftirlitsmennirnir eru svo sannarlega að vinna fyrir samfélagið – að það eigi að vera einhver leynd yfir því hvernig menn vinna

Þannig er ekki nútímasamfélag og þetta verðum við að laga.“

Skýrslan sparar ríkinu nefndarskipun

Benedikt sagði vinnu skýrslunnar koma í stað þess að ríkið þurfi að skipa nefnd um málið.

„Ég vonast til þess að maður muni sjá fleiri skýrslur eins og þessa, málefnalegar, vel unnar með skýrum tillögum, þannig að maður geti bara tekið skýrsluna – það þarf ekki einu sinni að skipa nýja nefnd til að ákveða hvað eigi að gera, þetta er bara hér, algjörlega ókeypis fyrir fjármálaráðuneytið fyrir utan þessar endurgreiðslur sem við lendum í,“ sagði fjármálaráðherra.

„Ég kvarta svo sannarlega ekki undan því að vera undir aðhaldi og eftirliti bæði frá samtökum og einstaklingum.“