Berglind Ósk Guðmundsdóttir hefur hafið störf á rágjafasviði Azazo, sem er íslenskt hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtæki sem hefur meðal annars þróað stjórnvefgáttina Azazo BoardMeetings sem fjölmörg íslensk fyrirtæki nýta sér.

Berglind starfaði áður hjá KPMG og er sérsvið hennar stjórnarhættir fyrirtækja. Var hún ritstjóri Handbókar stjórnarmanna og hefur hún annast fræðslu fyrir stjórnarmenn og aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að bæta stjórnarhætti sína.

Lauk Berglind embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005, og fékk hún réttindi til að vera héraðsdómslögmaður (hdl.) árið 2008.