Berkshire Hathaway, fjárfestingafélag Warren Buffett hefur fest kaup á 9,8% hlut í bandaríska fasteignafélaginu Store Capital Corp. Berkshire keypti 18,6 milljón hluti fyrir 20,25 dollara á hlut. Hefur gengi hlutabréfa Store Capital Corp hækkað um 10,88% það sem af er degi eftir að hafa lækkað um 16% frá áramótum. Bloomberg greinir frá.

Fjárfestingin sem er upp á 377 milljónir dollara er önnur fjárfesting Berkshire á innan við viku. Á síðasta fimmtudag var tilkynnt um að fyrirtækið hefði gerst lánveitandi til þrautavara fyrir kanadíska fjármálafyrirtækið Home Capital Group auk þess sem Berkshire keypti 38,4% hlut í fyrirtækinu.