Á örfáum árum hefur íslenskur leikjaiðnaður tekið stakkaskiptum eins og hendi væri veifað. Í upphafi 21. aldarinnar var tölvuleikjaiðnaður varla starfandi hér á landi, en á síðasta ári töldust til þessa iðnaðar um átján fjölbreytt fyrirtæki.

Stærsta fyrirtækið á markaðnum er CCP, sem þróað hefur leikinn EVE Online og veltir um 90% af heildarveltu iðnaðarins. Þar fyrir utan eru minni og yngri fyrirtæki á markaðnum, einkum nýsköpunar- og sprotafyrirtæki. Vöruframboð þessara fyrirtækja er mismunandi og tilgangur leikjanna þar af leiðandi ólíkur, en markmiðið getur verið skemmtun eða spilun í leik, námi eða starfi.

„Það er gróska í tölvuleikjaiðnaðinum hér á landi og grasrótin er öflug,“ segir Vignir Örn Guðmundsson, formaður Samtaka íslenskra leikjaframleiðenda (IGI), sérfræðingur á hugverkasviði Samtaka iðnaðarins og einn af stofnendum tölvuleikjafyrirtækisins Radiant Games. „Það skýrist að mörgu leyti af umhverfinu sem greinin starfar í. Þar hefur margt batnað undanfarin ár, en þó er enn margt fyrir stefni.“

Öflug grasrót

Mannauður og öflugt háskólasamfélag skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki sem framleiða tölvuleiki, enda grundvallast leikjagerð á ímyndunarafli og ýmiss konar sérfræðiþekkingu. Vignir segir að rekja megi gróskuna í tölvuleikjaiðnaðinum hér á landi að miklu leyti til háskólasamfélagsins.

„Nokkur fyrirtæki hafa orðið til úr verkefnum í háskólum landsins undanfarin ár. Samstarf iðnaðarins og háskóla er gott og þá sérstaklega milli Háskólans í Reykjavík (HR) og CCP. Einnig undirrituðu Háskóli Íslands og CCP samstarfssamning í maí. Til dæmis er tölvunarfræðideild HR með áherslusvið þar sem einblínt er á þróun tölvuleikja, og var David Thue, aðstoðarprófessor við deildina, ráðinn þangað með aðkomu CCP.“ Einnig bendir Vignir á að ýmis fyrirtæki hafi orðið til út frá CCP undanfarin ár, sem hafi eflt grasrótina.

IGI er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins sem stofnaður var af tíu leikjafyrirtækjum árið 2009. IGI er ætlað að vera öflugur vettvangur sem veitir leikjaframleiðendum stuðning og margvíslega þjónustu. Hlutverk samtakanna er einnig að stuðla að auknu samstarfi hagsmunaaðila og gera Ísland að vænlegum áfangastað fyrir erlenda sérfræðinga í leikjaiðnaði.

IGI er með samfélagsnefnd sem stofnar til viðburða og svokallaðra „game jams“ yfir eina helgi eða viku. Þar hittist fólk til að skipuleggja, hanna eða búa til tölvuleiki. Þetta er gert til að ýta undir grasrótina og nýsköpunina,“ segir Vignir. „En sköpunin er eitt og iðnaðurinn er viðameira dæmi. Það er ýmislegt sem stendur iðnaðinum fyrir þrifum.“

Hindranir fyrir frekari vöxt

Vignir segir IGI hafa komið ýmsu í verk undanfarin ár, en segir að það megi ýmislegt gera til að bæta nýsköpunarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks leikjaiðnaðar.

Nánar er fjallað um málið í Frumkvöðlum , tímariti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .