Bílanaust tilkynnti starfsmönnum sínum um gjaldþrot fyrirtækisins á starfsmannafundi í morgun. Mbl.is greinir frá þessu .

„Það eru allir bara að fara heim og starfslok hjá öllum starfsmönnum," hefur mbl eftir Bjarka Jakobssyni, verslunarstjóra Bílanausts. Þar segir hann einnig að fólki hafi verið brugðið við tíðindin í morgun.

Einnig var boðað til starfsmannafundar hjá starfsmönnum Bílanausts á Akureyri og Egilsstöðum. Í dyrum verslana félagsins hefur verið hengdur upp miði þar sem tilkynnt er um lokun verslananna vegna breytinga.