Bill Gates er auðugasti Bandaríkjamaðurinn 22. árið í röð, samkvæmt úttekt Forbes, en listi blaðsins yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina kom út í dag. Nýliðar á listanum eru 25 talsins, þar á meðal er Evan Spiegel, annar stofnenda SnapChat, en Spiegel er yngsti maðurinn á listanum og yngsti milljarðamæringur heims í bandaríkjadölum talið, að því er segir í umfjöllun Forbes.
Aldrei hefur verið erfiðara að komast á listann, en til að teljast í hópi 400 ríkustu Bandaríkjamannanna þurftu einstaklingarnir að eiga 1,7 milljarða hioð minnsta. Í fyrra nægði að eiga 1,55 milljarða dala til að komast á listann. Um 145 milljarðamæringar, í dölum talið, komust ekki á lista Forbes í ár.
Tíu ríkustu Bandaríkjamennirnir eru eftirfarandi:
- Bill Gates, stofnandi Microsoft. 76 milljarðar dala.
- Warren Buffett, fjárfestir. 62 milljarðar dala.
- Larry Ellison, stofnandi Oracle. 47,5 milljarðar dala.
- Jeff Bezos, stofnandi Amazon. 47 milljarðar dala.
- Charles Koch, framkvæmdastjóri Koch Industries. 41 milljarður dala.
- David Koch, bróðir Charles og aðstoðarforstjóri Koch Industries. 41 milljarður dala.
- Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook. 40,3 milljarðar dala.
- Michael Bloomberg, forstjóri Bloomberg. 38,6 milljarðar dala.
- Jim Walton, sonur stofnanda Walmart. 33,7 milljarðar dala.
- Larry Page, annars stofnenda Google. 33,3 milljarðar dala.