Birgir Jónsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Íslandspósts og hefur þegar tekið til starfa. Kemur ráðningin á sama tíma og Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt að fyrirtækið fái um 1,5 milljarð króna .

Birgir hefur langa stjórnunar- og rekstrarreynslu í atvinnulífinu hér heima og erlendis, síðast sem framkvæmdastjóri Póstmiðstöðvarinnar en þar á undan var hann forstöðumaður mannauðslausna hjá Advania.

Þá muna margir eftir Birgi sem fyrrverandi trommuleikara þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu. Birgir lærði prentun hér heima, lauk BA-gráðu í prent- og útgáfustjórnun frá London Institute og MBA-prófi frá Westminster University í London.

„Ég er þakklátur fyrir það mikla traust sem stjórn Íslandspósts sýnir mér,“ segir Birgir Jónsson . „Það er mikið ábyrgðarhlutverk að leiða Íslandspóst sem þjónar mikilvægum almannahagsmunum. Ljóst er að stór og krefjandi verkefni bíða. Ég hlakka til að takast á við þau og vinna með því góða fólki sem starfar hjá Íslandspósti um land allt.“

Bjarni Jónsson formaður stjórnar Íslandspósts: „Með ráðningu Birgis fær Íslandspóstur öflugan stjórnanda sem við treystum fullkomlega til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða og leiða þann fjölbreytta hóp sem hjá fyrirtækinu starfar.”