Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, hefur verið boðuð á fund Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Leiða má líkum að því að forseti sé að fara að veita henni stjórnarmyndunarumboð.

Hér er hægt að sjá yfirlýsingu frá forsetaembættinu;

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson hefur boðað Birgittu Jónsdóttur, þingflokksformann Pírata, á sinn fund á Bessastöðum kl. 16:00 í dag.
Að fundinum loknum mun forseti ræða við fjölmiðla.