Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustuupplifunarsviðs Icelandair, sem hún tók við fyrir 2 vikum, keypti nú síðdegis 150.000 hlutabréf í Icelandair fyrir rúma 1,2 milljónir króna.

Í gær keyptu Heiðrún Jónsdóttir , stjórnarmaður, og Björgólfur Jóhannsson , forstjóri, einnig bréf fyrir samtals um 5,5 milljónir króna. Kaupin eru því samanlagt komin í 6,7 milljón krónur.