Bjarki Baxter hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Wow Air.

Bjarki vann áður sem lögfræðingur hjá Hildu, dótturfélagi Eignasafns Seðlabanka Íslands um tveggja ára skeið.

Þar áður var hann um fjögurra ára skeið hjá Dróma, slitastjórn SPRON.

Bjarki situr í varastjórn TM en var aðalmaður í stjórninni 2012-2014.

Bjarki nam lögfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2007.