Bjarki Heiðar Ingason mun gerast meðeigandi í Taktikal og starfa sem hugbúnaðarsérfræðingur í vöruþróun og ráðgjöf í netviðskiptum. Bjarki starfaði áður sem sérfræðingur í hugbúnaðarþróun hjá Arion Banka á árunum 2006 - 2010, síðar sem yfirhönnuður hugbúnaðarþróunar hjá Liquid Barcodes A/S og hjá Spider Solutions A/S í Noregi. Síðast starfaði Bjarki sem tæknistjóri (CTO) hjá Skapalón.

Sem hugbúnaðarsérfræðingur mun Bjarki taka virkan þátt í vöruþróun félagsins og sinna ráðgjafarstörfum fyrir viðskiptavini Taktikal í tæknilausnum sem tengjast greiðslumiðlun, uppbyggingu innviðakerfa og sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla. Bjarki er með Bsc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Taktikal segir við tilefnið: „Það er einstaklega mikilvægt fyrir vaxandi fyrirtæki eins og okkur að fá Bjarka í lið með okkur. Hann kemur með verðmæta reynslu úr ört vaxandi tækniumhverfi í smásölu- og heilbrigðisgeiranum erlendis sem mun styrkja þjónustuframboð okkar verulega.”