Stjórn Iceland Seafood International ákvað í dag að ráða Bjarna Ármannsson sem forstjóra félagsins. Bjarni sem stígur nú úr stjórn félagsins hefur verið stjórnarformaður ISI frá september 2018 og tekur við starfi Helga Antons Eiríkssonar sem hefur óskað eftir að stíga til hliðar eftir níu ár í stóli forstjóra.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þá hefur Lee Camfield, COO einnig óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Bæði, Helgi og Lee, munu starfa náið með nýjum forstjóra næstu mánuði.

Bjarni Ármannsson, forstjóri ISI:

„Helgi hefur verið forstjóri félagsins frá 2010 og hefur leitt uppbyggingu félagsins sem alþjóðlegs framleiðanda á sjávarafurðum, byggða á hinum sterka íslenska grunni félagsins og í samstarfi við íslenska framleiðendur. Félagið stendur eftir fjárhagslega sterkt og er tilbúið fyrir enn frekari vöxt. Ég vil þakka Helga fyrir það mikla starf sem hann hefur innt af hendi við uppbyggingu félagsins. Það hefur leitt af sér mikinn og eftirtektarverðan árangur undanfarin ár.

Framundan eru spennandi tímar hjá Iceland Seafood International. Félagið hyggur á skráningu á aðalmarkað Kauphallar Íslands á þessu ári. Hjá félaginu starfa 630 starfsmenn í níu dótturfélögum, mestmegnis í Evrópu. Sú mikla þekking og reynsla sem teymi ISI búa yfir, víðsvegar um heim, er það sem gerir fyrirtækið vel í stakk búið til áframhaldandi vaxtar. Það er spennandi að leiða þennan góða hóp inn í þau mikilvægu verkefni sem framundan eru og hlakka ég til þess.”

Helgi Anton Eiríksson:

„Ég er hreykin og þakklátur fyrir ár mín sem forstjóri ISI. Eftir tæpan áratug hjá félaginu tel ég þetta réttan tímapunkt til að stíga til hliðar og horfa til nýrra tækifæra.

Félaginu hefur vegnað vel undanfarin ár og ber að þakka árangurinn okkar frábæra starfsfólki víða um heim og sterkum og traustum viðskiptavinum okkar á Íslandi og erlendis. Iceland Seafood starfar í krefjandi umhverfi alþjóðlegs sjávarútvegs og félagið er vel í stakk búið til að halda áfram sínum kröftuga vexti á næstu árum."