Bjarni Benediktsson segist lengi hafa talað fyrir stofnun stöðugleikasjóðs ríkisins erlendis.

„Ég hef lengi talað fyrir því að við tækjum til hliðar væntan arð af nýtingu auðlinda. Og ég hef verið að horfa sérstaklega til orkuauðlindanna í því samhengi," segir Bjarni í frétt RÚV .

„En ég fagna allri umræða um það að við Íslendingar séum meira að horfa til framtíðar og byggja undir meiri stöðugleika hér í landinu."

Í vikunni lagði Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningardeildar Íslandsbanka, það til að stofnaður yrði slíkur sjóður með tekjum af ferðaþjónustunni, sem hægt væri að nýta til að jafna sveiflur í hagkerfinu.

„Ég tek eftir því að menn sjá fyrir sér möguleika á að leggja slíkum sjóði til einhver stofnframlög og mér finnst að það geti alveg komið til greina," segir Bjarni.

„En ég er sem sagt búinn að skipa starfshóp sem á að skila mér tillögum um frumvarpsdrög að slíkum sjóði. Og við hyggjumst líka eiga samtal við aðra flokka á Alþingi til þess að undirbúa þetta sem best. Þessi vinna er sem sagt bara að fara af stað.“