Í gærmorgun kom Bjarni Ólafsson AK með 460 tonn af norsk-íslenskri síld til Neskaupstaðar og hófst þegar vinnsla á henni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Gísli Runólfsson skipstjóri segir að auðvelt hafi reynst að sækja aflann.

„Við fórum bara hérna út í Seyðisfjarðardýpið og tókum tvö stutt hol en leituðum ekkert víðar. Á landleiðinni sáum við svo töluverða síld hérna alveg upp við land eða 6-8 mílur út af Norðfjarðarhorni. Ég held að þetta líti bara ágætlega út. Síldin sem við fengum er stór og falleg og af allra bestu gerð. Hún er algerlega átulaus og meðalþyngdin reyndist vera um 400 gr. Ég held að þessi síld hljóti að henta afar vel í vinnsluna,“ segir Gísli.

Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu tekur undir með Gísla. Hann segir að síldin sé mjög góð og fín og hún sé öll flökuð. „Þessi síld hentar afar vel í vinnsluna og hún á eftir að verða enn betri,“ segir Jón Gunnar.

Nú er bræla á síldarmiðunum og bæði Börkur NK og Bjarni Ólafsson liggja í höfn eins og er. Beitir NK er hins vegar væntanlegur úr Smugunni með um 1.100 tonn af makríl en megnið af aflanum fékkst í gær.