Bjarni Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Viðskiptablaðsins, hefur hafið störf hjá auglýsingastofunni Jónsson & Lemacks. Þar mun hann sinna skrifum, almannatengslum og framleiðslu efnis fyrir viðskiptavini stofunnar.

Bjarni hefur um árabil starfað sem blaðamaður og sérhæft sig í skrifum um viðskipti. Hann var á Viðskiptablaði Morgunblaðsins frá árinu 2005 en færði sig til Viðskiptablaðsins árið 2011. Bjarni tók við ritstjórn Viðskiptablaðsins í janúar 2014 og starfaði sem ritstjóri þar til í júní á þessu ári.

„Okkur er mikill fengur að því að fá Bjarna til starfa. Hæfileikar hans og reynsla munu nýtast viðskiptavinum okkar afar vel í fjölmiðla- og markaðsumhverfi sem kallar á skýrar raddir og sífellt fleiri leiðir til að koma skilaboðum á framfæri.“, segir Agnar Lemacks, framkvæmdastjóri Jónsson & Lemacks.

Bjarni er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam lögfræði við Háskóla Íslands. Unnusta hans er Hólmfríður Gísladóttir, blaðamaður á mbl.is.

Auglýsingastofan Jónsson & Lemacks var stofnuð árið 2003 og vinnur með viðskiptavinum sínum að því að móta og staðsetja vörumerki í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi. Hjá stofunni starfa rúmlega 40 starfsmenn sem vinna að markaðssetningu og hönnun á öllum stigum.