Ísland er í 1. sæti á lista yfir efnahagslegan árangur samkvæmt Positive Economy Index 2017 , en niðurstöðurnar voru kynntar á ráðstefnunni Global Positive Forum í París í dag. Staðallinn mælir árangur OECD-ríkja í efnahagsmálum með tilliti til ósérplægni efnahagsstefnu þeirra m.a. á mælikvarða jákvæðrar skuldastefnu, menntastefnu, endurnýjanlegrar orkunotkunar og samfélagslegs trausts að því er kemur fram í frétt á vef forsætisráðuneytisins .

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, ávarpaði af þessu tilefni ráðstefnuna og svaraði spurningum Jaques Attali, stofnanda vettvangsins. Meðal þess sem þeir ræddu var þáttur jafnréttis og félagslegrar samheldni í góðum árangri Íslands, sem og skynsamlega notkun auðlinda og fyrirhyggju í fjármálum með setningu laga um opinber fjármál, fyrirhugaða stofnun stöðugleikasjóðs og sterka stöðu lífeyriskerfisins.

Positive Economy Index mælikvarðinn á rætur sínar að rekja til ársins 2013 og hefur Ísland frá upphafi komið ágætlega út og er þetta árið í efsta sætinu. Mælikvarðinn snýst ekki síst um efnahagsstöðu og stefnu ríkja, samfélagið, félagsleg og siðferðileg gildi, og hve mikilvægt er að snúa frá skammtímahugsun til langtímahugsunar.

Áhugasamur Frakklandsforseti

Forsætisráðherra greindi sjálfur frá því á Facebook síðu sinni að hann hafi átt fund með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, að fundi loknum. Að sögn Bjarna var Macron „mjög áhugasamur um efnahagsárangur og launajafnrétti á Íslandi,“ auk þess að Frakklandsforseti hafi lýst miklum áhuga á því að sækja Ísland heim.

„Þess má svo geta að Macron var eitt sinn aðstoðarmaður upphafsmanns efnahagsstaðalsins og stofnanda Positive Planet, Jaques Attali, sem var m.a. lengi ráðherra og síðar ráðgjafi Hollande, fyrrverandi Frakklandsforseta, en við Attali áttum afar gott samtal á ráðstefnunni,“ skrifar Bjarni enn fremur.