Bjartur NK hélt til veiða í gærmorgun. Er þetta síðasta veiðiferðin sem skipið heldur í hér við land, en ráðgert er að afhenda hann írönskum kaupanda í Reykjavík um næstu mánaðamót. Það ríkti sérstök stemmning þegar skipið var búið í veiðiferðina en Bjartur hefur verið gerður farsællega út frá Neskaupstað frá árinu 1973. Bjartur er einn af hinum svonefndu Japanstogurum og var hann smíðaður fyrir Síldarvinnsluna í Niigata, hleypt af stokkunum þar hinn 25. október 1972 og afhentur Síldarvinnslunni 12. janúar 1973. Til heimahafnar í Neskaupstað kom hann í fyrsta sinn 2. mars 1973 eða fyrir liðlega fjörutíu og þremur árum.

Skipstjóri á Bjarti í þessari síðustu veiðiferð er  Steinþór Hálfdanarson. Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við hann í morgun en þá var verið að toga í Berufjarðarál. „Hér er blessuð blíðan og algert stafalogn. Það er virkilega gott að taka síðasta túrinn á Bjarti í svona veðri. Við áætlum að koma í land um hádegi á sunnudag og þá kveðja menn um borð skipið með söknuði,“ sagði Steinþór.

Sjá nánar á vef SVN.