Erlendir framtakssjóðir hafa boðið í þrjátíu prósenta hlut HS Orku í Bláa lóninu. Gefur tilboðið til kynna að HS Orka gæti fengið í kringum tíu milljarða króna fyrr hlut sinn í Bláa lóninu, einu stærsta ferðaþjónustufélagi landsins að því er kemur fram í frétt Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins .

Líkt og Viðskiptablaðið hefur áður greint frá er talsverður áhugi á hlut HS Orku í ferðaþjónustufyrirtækinu og setti HS Orku hlut sinn í söluferli um miðjan maí. Samkvæmt heimildum Markaðarins bárust tilboð frá þremur eða fjórum erlendum fjárfestingarsjóðum áður en frestur til þess að skila inn tilboðum rann út þann 30. júní síðastliðinn. Ef tekið er mið af þeim tilboðum þá er hægt að áætla að markaðsvirði Bláa lónsins er nokkuð yfir 30 milljörðum króna.

Talið er líklegt að það skýrist á næstu tveimur til fjórum vikum hvort af viðskiptunum verði. Ráðgjafafyrirtækið Stöplar Advisory hefur umsjón með söluferlinu fyrir hönd HS Orku. Magma Energy, dótturfélag kanadíska félagsins Alterra, á 66,6 prósenta hlut í HS Orku og á samlagshlutafélagið Jarðvarmi, sem er í eigu fjórtán lífeyrissjóða 33,4 prósenta hlut. Stjórn Jarðvarma þarf þó að gefa samþykki sitt eigi möguleg sala að eiga sér stað. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, og Anna Skúladóttir, stjórnarformaður HS Orku, sitja í stjórn Bláa lónsins.