Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson tók nú nýlega þátt í 4,3 milljóna punda fjármögnun breska tæknifyrirtækisins Catapult, í gegnum Novator fjárfestingafélag sitt. Markaðurinn greinir frá þessu .

Catapult þróar gervigreind sem tengir hæfileika vinnuafls saman við þarfir vinnuveitenda. Breski fjölmiðillinn City A.M. greindi upphaflega frá þessu, en í frétt þeirra kemur fram að Birgir Már Ragnarsson, meðeigandi í Novator, muni taka sæti í stjórn Catapult.

„Catapult hefur opnað stóran markað með nýja vinnulíkaninu,“ segir Birgir Már. „Við fjárfestum í Catapult fyrir ári síðan og höfum séð fyrirtækið vaxa ört. [...] Við erum spenntir fyrir því að auka hlut okkar og þátttöku.“

Dollar Shave Club og Elkstone Ventures komu auk þess að hlutafjáraukningunni.