Björgvin Ingi Ólafsson mun sinna kennslu í markaðsmálum í MBA námi við Háskóla Íslands og mun hann sinna henni samhliða störfum sínum fyrir Íslandsbanka.

Björgvin Ingi hefur starfað sem framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Íslandsbanka síðan 2014. Undir sviðið heyra sölumál, viðskiptagreining, netviðskipti, þjónusta, markaðsmál og viðskiptaþróun.