Björn Víglundsson er nýr framkvæmdastjórn Miðla Vodafone, sem er nýtt svið sem inniheldur þær einingar sem koma frá 365 í kjölfar yfirtöku Fjarskipta á ljósvakamiðlum fyrirtækisins.

Í dag, fullveldisdaginn 1. desember, eru eignirnar formlega komnar í eigu Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, en um er að ræða fjölmiðla eins og Stöð 2, Stöð 2 Sport, Bylgjuna, FM957, Xið, vísir.is, fréttadeild og auglýsinga- og áskriftasölu.

Björn hefur starfað hjá Vodafone frá árinu 2005, fyrst sem framkvæmdastjóri Markaðssviðs, þá framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs og nú síðast framkvæmdastjóri Sölu & þjónustusviðs.

Áður starfaði Björn hjá Toyota á Íslandi og Tryggingamiðstöðinni. Björn er menntaður viðskiptafræðingur frá University of Tampa í Bandaríkjunum. Hann er giftur Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka Ferðaþjónustunnar og eiga þau þrjú börn.

Viðskiptavinir finni litlar breytingar

Björn Víglundsson mun leiða samþættingu eininganna við aðrar einingar Fjarskipta og vöruþróun sem félagið telur mikil tækifæri í. Það er skýrt markmið samrunans að styðja öfluga innlenda dagskrárgerð og faglega óháða fréttastofu sem lykilþátt í framtíðarstefnu félagsins.

Viðskiptavinir munu finna litlar sem engar breytingar fyrst um sinn en markmiðið er að viðskiptavinir finni fljótlega fyrir jákvæðum breytingum með tilliti til vöruframboðs og þjónustu sem mun skila sér til neytenda.

Greiðslan fer fram í dag

Þann 14. mars 2017 undirrituðu Fjarskipti hf. og 365 miðlar hf. samning um kaup á rekstrarhluta og nánar tilgreindum eignum 365 miðla hf., að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour.

Samkeppniseftirlitið samþykkti kaupin með skilyrðum þann 9. október síðastliðinn og við það tilefni kom fram að næstu vikur færu í að leggja lokahönd á viðskiptin og uppfylla hefðbundna fyrirvara í kaupsamningi með það að markmiði að greiðsla kaupverðs og afhending eigna færi fram 1. desember 2017.

Nú hafa allir fyrirvarar kaupsamningsins verið uppfylltir og þeim aflétt. Samhliða hefur verið gengið frá nauðsynlegum samningum , m.a. um uppgjör aðila sín á milli. Greiðsla kaupverðs og afhending eigna og reksturs fer því fram í dag.

Heildarveltan 22 milljörðum króna

Velta sameinaðs félags mun nema um 22 milljörðum króna og skila um 5 milljörðum króna í EBITDA hagnað þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram eftir 12-18 mánuði. Með viðskiptunum verður til leiðandi fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi, sem mun veita yfir 500 manns atvinnu og bjóða upp á fjölbreytt vöruframboð og enn betri þjónustu til sinna viðskiptavina.

Stefán Sigurðsson , forstjóri Vodafone segir mjög ánægjulegt að taka síðasta skrefið í kaupunum á stórum hluta fjölmiðla- og fjarskiptastarfsemi 365.

„Á meðan á löngu kaupferli hefur staðið hef ég gert mér enn betur grein fyrir mikilvægi þessarar starfsemi fyrir íslenskt samfélag og þeim frábæra hópi starfsfólks sem á hverjum einasta degi færir landsmönnum menningu, fréttir og afþreyingu í heimsklassa í sjónvarpi, útvarpi á netinu eða í snjalltækjum,“ segir Stefán.

„Við hlökkum til að geta nú farið að vinna með afbragðs starfsfólki í nýjum einingum að framtíðarþróun félagsins. Þrátt fyrir aukið erlent framboð tel ég að um alla framtíð verði þörf og eftirspurn eftir öflugum innlendum miðlum sem gera efni sem tengist samfélagi okkar og menningu.

Markmiðið er skýrt að reka öfluga íslenska fjölmiðlun, byggja upp einstakan vinnustað og vöru og þjónustu í bestu fáanlegu gæðum fyrir landsmenn alla.“