Stjórn Bjartrar framtíðar og ráðgjafaráð Viðreisnar hafa nú samþykkt stjórnarsáttmála sem lagður var fyrir til grundvallar fyrir ríkisstjórnarsamstarf flokanna þriggja, Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartar framtíðar. Því er ljóst að ný ríkisstjórn verður kynnt von bráðar.

Í fréttatilkynningu frá Bjartri framtíð kom eftirfarandi fram: „Stjórn Bjartrar framtíðar hefur á fundi sínum í kvöld kynnt sér efni stjórnarsáttmála flokksins, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks. Sáttmálinn var, eftir umræður, borinn undir stjórnina í rafrænni kosningu og hlaut þar samþykki flokksins.“

Ráðgjafaráð Viðreisnar samþykkti sáttmálann einróma á fundi sínum í kvöld. Fyrr í kvöld samþykkti flokksþing Sjálfstæðisflokks sama sáttmála.