Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegsráðherra átti í dag fund með Karmenu Vella, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, að því er fram kemur í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Gunnar Bragi og Vella ræddu stöðuna í viðræðum strandríkja við NA-Atlantshaf um skiptingu deilistofna. Báðir lýstu þeir yfir vilja til að starfa náið saman að lausn þeirra mála. Málefni bláa hagkerfisins, sem er hvers konar efnahags starfsemi á haf- og strandsvæðum (blue economy), voru rædd. Þar sagði Vella að Íslendingar væru Evrópusambandinu góð fyrirmynd. Þeir ræddu einnig málefni hafsins (ocean governance) og málefni norðurslóða. Báðir voru þeir sammála um að nýting auðlinda yrði að byggja á bestu vísindarökum þannig að sjálfbærni væri sem best tryggð. Gunnar Bragi lýsti þeirri sýn Íslands hvernig ábyrgð og ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda á sjálfbæran hátt væri best fyrirkomið á staðbundinn og svæðisbundinn hátt en yfirþjóðleg þegar því sleppti.

Að endingu ræddu þeir Gunnar Bragi og Vella tvíhliða samkomulag Íslands og Evrópusambandsins um fiskveiðimálefni frá árinu 1992. Samkomulagið var gert í tengslum við gerð EES samkomulagsins en hefur verið óvirkt um nokkurra ára skeið. Þeir urðu ásáttir um að skoða leiðir til að endurvekja og endurnýja samkomulagið. Verður embættismönnum beggja aðila falið að funda á næstunni vegna þessa.