Bláa Lónið og Landspítali hafa gert með sér samstarfssamning um rannsóknir og klíníska vinnu. Samstarfið felst í ráðningu læknis sem hefur hug á sérnámi í húðlækningum. Starfið felur í sér rannsóknir og klíníska vinnu fyrir Bláa lóninu lækningalind þar sem veitt er meðferð við húðsjúkdómum og klínískt starf á húðdeild LSH.  Rannsóknavinnan felur í sér undirbúning og vinnu við klíníska rannsókn sem snýr að áframhaldandi rannsóknum á lækningamætti Bláa lónsins.  Heiti rannsóknarinnar er ?Áhrif Blue Lagoon meðferðar á psoriasis.? Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf, segir samstarfssamninginn vera mikilvægan áfanga fyrir fyrirtækið. ?Rannsóknastarf skipar mikilvægan sess í starfsemi Bláa Lónsins. Samstarfið við LSH gerir okkur kleift að efla þennan þátt enn frekar. Bláa Lónið hefur sett sér það markmið að verða leiðandi í húðmeðferðum við psoriasis- og exemsjúkdómum á alþjóðavettvangi. Fyrirtækið vinnur samkvæmt rannsóknaáætlun sem miðast að því að auka þekkingu á lækningamætti Bláa lónsins og um leið styrkja samkeppnishæfni í íslenskrar heilbrigðisþjónustu á alþjóðavettvangi.?

Magnús Pétursson forstjóri Landspítala fagnar samstarfssamningnum  ? Landspítali er í margs konar samstarfi við fyrirtæki og stofnanir á heilbrigðissviðinu.  Háskólasjúkrahúsið vill auka slíkt samstarf vegna þess að um gagnkvæma hagsmunni er að ræða.  Þannig er það vissulega í þessu tilfelli því samningurinn stuðlar að því að húðlækningar styrkjast enn frekar á spítalanum.  Samstarf við Bláa lónið er einnig áhugavert að því leyti að það er sannarlega vilji spítalans, ef ekki skylda hans, að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga í markaðs- og útrásarstarfi þeirra.?