Ísland var valið fegursti tökustaðurinn á alþjóðlegu verðlaunahátíðinni, International Film Business Awards í byrjun desember. Einar Tómasson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu tók við verðlaununum, en hann leiðir verkefnið Film in Iceland sem kynnir Ísland sem tökustað erlendis.

Verðlaunaafhendingin fór fram í tengslum við Indywood Film Carnival, sem er ein stærsta sölu- og kynningarhátið kvikmyndageirans, og haldin er á Indlandi.

Sex myndir frá Bollywood teknar upp hér á landi

Á undanförnum árum hafa sex kvikmyndir frá Indlandi verið teknar upp hér á landi. Sú stærsta þeirra er án efa kvikmyndin Dilwale, með indversku stórstjörnunni Shah Rukh Khan sem tekin var hér upp árið 2015. Myndband við lagið Gerua sem er úr kvikmyndinni naut gríðarlegra vinsælda, en það hefur fengið rúmlega 200 milljón áhorf á Youtube. Framleiðslukostnaður þess var um ein milljón dollara.

Khan er ein stærsta kvikmyndastjarna heims, og hefur verið kallaður Konungur Bollywood. Alls eru rúmlega 40 milljónir manns að fylgjast með honum á samfélagsmiðlunum Instagram og Twitter, sem er umtalsvert meira en Íslandsvinir á borð við Tom Cruise og Ben Stiller geta státað, en hvor um sig er með rúmlega 7 milljónir fylgjenda.

Framleiða árlega meira en 1.500 kvikmyndir

Íslandsstofa hefur staðið fyrir kynningu á Íslandi sem tökustað undanfarin ár í samstarfi við Sendiráð Íslands. Einar Tómasson, verkefnstjóri Film in Iceland hjá Íslandsstofu, segir að áhugi á Íslandi sem tökustað sé vaxandi á Indlandi.

„Ég held að fólk geri sér kannski ekki grein fyrir því hvað kvikmyndaiðnaðurinn í Indlandi er stór. Þar eru árlega gerðar meira en 1500 kvikmyndir og seldir fleiri miðar en nokkurs staðar í heiminum,“ segir Einar sem segir því eftir miklu að slæðast fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki að leita fanga þar.

„Svona verðlaun eru okkur mikils virði því þau vekja athygli. Það skemmir heldur ekki fyrir að fá hingað stjörnu á borð við Shah Rukh Khan.“