Reykjavíkurborg býður nú til sölu lóðir í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási, auk nokkurra lóða í Blesugróf og Lambaseli. Lóðirnar eru seldar á föstu verði í samræmi við samþykkt borgarráðs í byrjun mánaðar. Verð fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjald á íbúð í fjölbýlishúsi er 4,6 milljónir króna, í rað- og parhúsum 7,6 milljónir og 11,1 milljón króna fyrir einbýlishús upp að 375 fermetrum.  Verð fyrir byggingarrétt í Reykjavík hefur að mestu verið óbreytt frá árinu 2007.

Fram kemur í tilkynningu frá borginni að lóðir voru síðast boðnar í fyrra og þá með útboðsfyrirkomulagi. Með breyttu sölufyrirkomulagi verður framboð lóða viðvarandi og söluferlið gagnsætt og hægt er að sinna umsóknum um lóðir jafnóðum og þær berast. Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir til skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að undanförnu um lausar lóðir.

Allar lóðirnar sem bjóðast eru byggingarhæfar og alls er byggingarréttur fyrir 153 íbúðir til sölu.  Í Úlfarsárdal eru 54 lóðir fyrir einbýlishús, 7 raðhús með byggingarrétti fyrir 29 íbúðir, 14 parhús og ein fjölbýlishúsalóð með 5 íbúðum. Við Reynisvatnsás er 31 einbýlishúsalóð.  Í Blesugróf og Lambaseli eru 6 einbýlishúsalóðir í boði.