Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að samninganefndin muni taka mið af samningum sem Amsterdam og London hafa gert við Airbnb. Þar segir einnig að Reykjavík hafi sótt lærdóm til annarra ört vaxandi ferðamannaborga, t.d. Barselóna, Parísar, Stokkhólms og Amsterdam. Með samningum við Airbnb verður hægt að fá betri upplýsingar um ólöglega gistingu. Þá getur vefsíðan hindrað eigendur húsnæðis sem eru ekki með formlegt leyfi til gististarfsemi umfram 90 daga regluna í því að leigja út eignir sínar umfram þann dagafjölda.

Reykjavíkurborg verður fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi til að nálgast Airbnb á þennan hátt. Stofnun samninganefndarinnar er á grunni tillagna starfshóps um heimagistingu sem skipaður var af borgarstjóra sumarið 2016 og skilað tillögum í júní 2017.

Í samningum Airbnb við borgaryfirvöld í London og Amsterdam er m.a. kveðið á um að þak sé sett á skráningu eigna við ákveðinn dagafjölda (60 eða 90 daga). Ef ætlunin er að bjóða eignina til lengri leigu þarf að afhenda Airbnb afrit af gistileyfum og skráningarnúmer.

Samninganefndin verður skipuð skrifstofustjóra borgarstjórnar sem verður formaður, fulltrúa frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar og fulltrúa borgarlögmanns. Nefndin hefur heimild til að leita eftir sérfræðiráðgjöf í alþjóðlegri samningagerð en mun einnig leita eftir ráðgjöf innan borgarkerfisins hjá aðilum sem hafa sérþekkingu á viðfangsefninu.