Gengi bréfa í Símanum hefur lækkað um 1,45% í viðskiptum dagsins, en veltan er 90 milljónir króna.

Gengi bréfa í Símanum er nú 3,4 og það er komið undir lokagengi fyrsta viðskiptadags bréfanna, en það var 3,49 krónur á hlut. Bréfin voru formlega tekin til viðskipta í kauphöllinni þann 15. október sl. og gengi þeirra fór hæst í 3,7 þann 20. október en hafa lækkað nokkuð jafnt síðan þá.